Endilega kvittið í gestabókina!



Velkomin!
Daðey heiti ég og er 23ja ára Vestfjarðar"mær". Ég bý á Akureyri með staka sokknum á móti mér, hann heitir Valdimar og er 29 ára. Hér verður hægt að fylgjast með því sem við erum að bralla og bardúsa. Endilega líttu við sem oftast, þú þarf ekki að fara úr skónum en comment eru vel þegin :)

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

Fjölskyldan


Pabbi


Elfar


Rakel


Litla prinsessan

Vinir


Heiða


Hugborg


Jóna


Mæja


Ættingjar


Anna Friðrikka


Ástey og Magga


Borgný Skúla


Dagur Hákon


Elísa Ósk


Friðrikka


Hafrún Páls


Hrafnhildur Ýr


Krista og fjölsk.


Kristrún


Rakel Brá


Sólrún Arney


Urður og fjölsk.


Þingeyringar


Berglind Hrönn


Bergur


Birgitta Rán


Bjarney


Bylgja Dögg


Eva Dögg



Guðný Ösp


Guðrún Ásta


Guðrún Sigþórs


Kolbrún Helga


Laufey Björk


Selma Rut


Sigga Stína


Sirrý og fjölsk.


Iðjur


Gulla


Hildur A.


Lilja


Oddný


Rósa og fjölsk.


Sólrún Ásta


Steinunn


Tinna


MA-ingar


Arnór


Atli


Hanna Björg


Heiðrún


Hóa


Laufey Sigrún


María Guðbjörg


Selma


Sigrún


Tinna


Litlu krílin


Babygirl Elfarsdóttir


Hlynur Smári


Þór, Freyr og Kristlaug Eva



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed




Wednesday, August 30, 2006
Ég gefst upp!

Aðdáendur mínir út um allan heim hafa sent mér kvörtunarbréf, hringt eða talað við mig undir fjögur augu um það alvarlega mál að komast ekki inn á bloggið mitt. Ég er meira að segja að lenda í þessu sjálf, svona endrum og eins, og er það að hluta til ástæðan fyrir því að ég hef ekkert verið að blogga.

Skrifað klukkan 01:46 pm af: [Daðey Arnborg]
Comment (1)  

Monday, August 28, 2006
....

Aðdáendur mínir út um allan heim hafa sent mér kvörtunarbréf, hringt eða talað við mig undir fjögur augu um það alvarlega mál að komast ekki inn á bloggið mitt. Ég er meira að segja að lenda í þessu sjálf, svona endrum og eins, og er það að hluta til ástæðan fyrir því að ég hef ekkert verið að blogga.

Nýja bloggið er á http://arnborg.wordpress.com


Skrifað klukkan 04:41 pm af: [Daðey Arnborg]
Make a comment  

....

Aðdáendur mínir út um allan heim hafa sent mér kvörtunarbréf, hringt eða talað við mig undir fjögur augu um það alvarlega mál að komast ekki inn á bloggið mitt. Ég er meira að segja að lenda í þessu sjálf, svona endrum og eins, og er það að hluta til ástæðan fyrir því að ég hef ekkert verið að blogga.

Nýja bloggið er á http://arnborg.wordpress.com


Skrifað klukkan 04:41 pm af: [Daðey Arnborg]
Make a comment  

Thursday, July 20, 2006
Eitt fyrir Val!

Gjörðu svo vel Valur...myndirnar sem þú baðst um...

Það eru reyndar fáar frá kvöldinu sjálfu enda var manneskjan sem átti að standa bakvið myndavélina (...held það hafi verið mitt hlutverk, allavega var mér aldrei boðið í afmælið Wink...) upptekin við að halda á einhverju allt öðru og vökvakenndara! Já, það eða að róla sér, fara í klessuróló við Signý eða að forða sér frá því að detta þegar það þurfti að hysja upp um sig eftir klósettferðir! Wink

Hefði óskað þess að vera með auka útivistarföt með mér svo ég væri ekki svona auðþekkjanleg daginn eftir...Wink Muna það bara næst!+

Hverjir eru svo með í næstu útilegu???????

 


Skrifað klukkan 12:50 am af: [Daðey Arnborg]
Comments (3)  

Friday, June 23, 2006
Löng ferðasaga eftir langa ferð!

Það er nú meira hvað maður er lélegur að henda einhverju hingað inn! Ekki að maður hafi gott veður sem afsökun, lítið um svoleiðis á þessum bæ...

Af okkur er það að frétta að við "skruppum" vestur í fermingu á helginni. Lögðum í hann hress og kát á föstudaginn um hálf 4. Ferðin gekk eins og í sögu, alla leiðina í Búðardal og örlítið betur en það! Vorum komin þangað um hálf 7, tókum bensín og rúntuðum áleiðis upp Svínadalinn. Þegar ég segi "rúntuðum", þá meina ég sko RÚNTUÐUM! Þar var ekki hægt að keyra á nema 20-30km hraða vegna vegaframkvæmda. Ekkert nema gróft grjót og ógeð!

Fyrir þá sem hafa lesið Gísla sögu Súrssonar þá vorum við allavega komin nógu langt til að segja "nú falla öll vötn til Soffíu frænku" en hún býr einmitt hinumegin við Svínadalinn, eða svona um það bil, þegar Valdi segir eitthvað í þá áttina að það sé eins og að keyra bílinn á sprungnu dekki! Það var nú ekki mikið tilhlökkunarefni að stíga út mín megin og kanna aðstæður, og enn síðra tilhlökkunarefni að heyra orðrununa sem gaus út um munnvikin á mér stundarkorni síðar. Jújú, það var "punkterað" eins og það er víst kallað, og lítið annað í málinu að gera en að grafa varadekkið undan öllum farangrinum í skottinu og smella því í snarhasti undir bílinn. Það var ekki síðri runan sem gjall úr kjafti karlsins þegar hann uppgötvaði að við vorum ekki með neitt varadekk!

Sem betur fer þurftum við ekki að bíða lengi eftir að fá far niður í Búðardal, á dekkjaverkstæði. Þar var leitað og leitað og hvergi fannst 17" dekk! Maðurinn á verkstæðinu hringdi út um allan bæ að athuga hvort einhver ætti dekk en heppnin var svo sannarlega ekki með okkur! Að lokum fannst reyndar eitt 17" dekk sem var nú samt hærra en okkar dekk. Það dugði þó til að koma okkur niður úr Svínadalnum og við héldum til Soffíu frænku og fengum að bíða þar á meðan foreldrar Valda komu keyrandi með vetrardekkin okkar að norðan!

Um hálf 2 að staðartíma komu Þóranna og Guðmundur með dekkin til okkar og við skelltum þeim undir sjálfrennireiðina í von um að geta tekið gleði okkar að nýju. Jújú, viti menn, loksins hafðist það og við héldum áfram áleiðis til Þingeyrar. Þangað komum við eftir 15 klst ferð, klukkan 7 um morguninn og skriðum beint upp í rúm. Þegar við vöknuðum svo seinna um daginn, var lekið úr öðru dekki hjá okkur!

Eftir langa íhugun ákváðum við að kaupa dekk á bílinn á Ísafirði á mánudeginum, hefðum hvort sem er þurft að kaupa 2 og svo hin 2 næsta sumar, svo við ákváðum að kaupa þau bara öll núna. Hringdum á dekkjaverkstæði og þeir áttu bara 3 af þessu og 1 af þessu og svo framvegis...en að það væri hægt að fá þau með flugi úr RVK í kvöld. Við höfðum nú ekki beint neitt val í þeim efnum og frestuðum því heimferðinni um einn dag. Hún gekk nú til allrar hamingju vel og tók ekki nema rúma 6 klst með stoppi.

Fyrir vestan var svosem ekki miklu komið í verk, öðru en að vesenast með þessi dekk. VIð hittum reyndar flesta úr mömmu fjölskyldu í fermingunni hennar Möggu og Valdi skellti sér á tófu með pabba.

Annars er allt komið í sinn vanagang hér á bæ. Nóg að gera í vinnunni hjá mér, og að sjálfsögðu á ég frí þær helgar sem Valdi er fyrir austan en er að vinna 13klst vaktir bæði lau og sun þær helgar sem hann er heima!

Niðurtalning fyrir Danmerkurferðina er hafin, og hér með er auglýst eftir einhverjum sem vill glaður sjá um tvo kisulinga í rúma viku í byrjun ágúst! Það kemur meira en mjög vel til greina að viðkomandi fái að búa gjaldfrjálst í íbúðinni okkar á meðan, ef sá hinn sami kærir sig um það. ADSL tenging, enski boltinn, frábært útsýni yfir Gleránna... Nú er bara um að gera að skella sér í vikufrí til Akureyrar, þar sem sólin aldrei sest Wink


Mæli með:
Love Songs
By Elton John



Skrifað klukkan 02:19 pm af: [Daðey Arnborg]
Comment (1)  

Friday, June 09, 2006
Ansi langt síðan síðast!

Ætli það sé ekki kominn tími á að henda nokkrum stöfum hingað inn! Hef eiginlega ekki gefið mér tíma í það undanfarið þar sem ég er búin að vera að vinna og umbreyta heimilinu okkar algjörlega!

Við vorum s.s að fá okkur nýjan sjónvarpsskáp í stofuna, nýtt rúm, dýnu og náttborð og tvær nýjar kommóður í svefnherbergið! Það merkilegasta við þetta er kannski það að þrátt fyrir að ég hafi smellt þessu öllu saman ein, nema rúminu (Valdi og pabbi hans sáu um það meðan ég var að vinna) þá kom ég ekki nema einu blótsyrði út úr mér á meðan á þessu öllu stóð! Ég sem er yfirleitt svo óþolinmóð og fljótfær gagnvart öllu svona. Fyndið hvað maður þroskast Wink 

Ég er svo búin að vera lasin, gjörsamlega raddlaus og ónýt! Hélt á tímabili að ég væri aftur komin með bronkítis en þar sem ég er nú öll að koma til þá held ég að þetta sé nú ekki svo slæmt!

Vinnan er fín og það er sko nóg að gera! Vildi að ég hefði sömu sögu að segja af "átakinu" mínu! Það hefur hreint ekki gengið neitt síðan eftir próf! Held ég sé búin að setja á mig 3-4kg eftir það! Kemur í ljós á þriðjudaginn, þá ætla ég loksins að taka á málunum aftur og koma mér í gírinn! Búin að vera að horfa á ljósu punktana í þessu öllu; komin í stærð 16 úr 22! Nota reyndar 18 í einhverju af bolum/skyrtum, en auðvitað vil ég halda því...og komast neðar! Og þangað er bara ein leið!

Ætla ekki að vera að kvelja ykkur meir með þessu væli mínu af "átaks-letinni" og bið að heilsa ykkur í bili Big Smile


Skrifað klukkan 12:20 am af: [Daðey Arnborg]
Comments (3)  

Wednesday, May 24, 2006
Hafði það af...!

Þá eru allar einkunnir komnar inn og mér gekk bara fjandi vel! Hafði áhyggjur af einu fagi og öskraði uppfyrir mig af kæti þegar ég sá þá einkunn birtast á skjánum í dag! Tilefni til að fagna, enda er mín að sjóða slátur svona bara rétt í þessu Big Smile Gerist ekki betra!

Hugsa að ég leggi það á mig að fara á Amtið á morgun og ná mér í einhverjar bækur. Ef ég á að vera að vinna svona seinnipartsvaktir þá verður maður nú að hafa eitthvað að gera fram að því...! Held ég sæki mér Purpuralitinn og P.S. Ég elska þig. Ef þið lumið á góðri bók, endilega látið vita.

ANTM í kvöld og svo á að fara að sýna Melrose Place frá upphafi á Skjá1!!! Big SmileBig SmileBig SmileBig SmileBig SmileBig SmileBig SmileBig Smile



Næst á náttborðið:
The Color Purple
By Alice Walker



Skrifað klukkan 07:22 pm af: [Daðey Arnborg]
Comments (6)  

Thursday, May 11, 2006
Bújaaaah!

Eins og góðkunnur tannlæknir í Litlu Hryllingsbúðinni sagði Big Smile

Ég er s.s. búin í prófum, eftir mikið streð og langa bið.Big SmileBig SmileBig SmileBig Smile Próftíðin einkenndist þó af miklu kæruleysi og litlu stressi, sem er eiginlega þver öfugt við það sem eðlilegt þykir! Ég kann nú enga haldbæra skýringu á þessu en svona hefur þetta verið síðust 2-3 próftíðir hjá mér...og sjaldan gengið eins vel og þá!

Er reyndar að fara að hella mér í verkefnavinnu á eftir...! Síðasta verkefni annarinnar!

Hún Rakel mágkona mín á afmæli í dag Big Smile Til hamingju með daginn Rakel, hafðu það gott og taktu þér nú pásu frá lestrinum til að gera eitthvað skemmtilegt Big Smile

Fékk bílinn í hendurnar eftir síðasta prófið svo maður tók auðvitað einn eða tvo hringi um Akureyri Wink Svo var fagnað próflokum (en ekki hvað???) í gærkvöldi! Bekkurinn fór í Bústað upp í Kjarnaskógi. Við grilluðum og drukkum og rétt eins og hún langamma þá spiluðum við og sungum, nema við héldum okkur frá þakinu. Enda kviknaði svosem ekki í neinu nema grillinu! Ég held ég geti fullyrt að allir hafi skemmt sér konunglega, í það minnsta gerði ég það!!! Big SmileBig SmileBig SmileBig SmileBig Smile

Takk stelpur fyrir FRÁBÆRT kvöld og FRÁBÆRA SKEMMTUN!!!

Við Tinna áttum Golden Moment rétt fyrir svefninn. Lágum í sitthvorri kojunni og hlógum í svona...kannski hálftíma!!! Við vitum ekki einusinni afhverju! Önnur byrjaði bara og svo vatt þetta upp á sig! Heyrðum svo í Marzennu hlægja í næsta herbergi, og það var ekki til þess að bæta ástandið! Magaæfingum kvöldsins var þar með reddað...ekki að maður hafði ekki hlegið nóg fram að þessu...

Er nú enn að jafna mig! Ekki eftir drykkju, langt því frá, finn ekki votta fyrir þynnku. Ég skil bara ekki enn hvernig hún Dagný gat fattað að ég var að leika Reykjarvíkurhöfn í Actionary í gær! Surprise Wink

 


Skrifað klukkan 04:07 pm af: [Daðey Arnborg]
Comments (4)  

Friday, May 05, 2006
Sjálfrennireið

Próf númer tvö var í morgun og mér gekk merkilega vel. Veit ekki enn hver sat á öxlinni á mér og hvíslaði að mér svörin, en váááá hvað hann á skilið miklar þakkir!!! Ég skil ekki hvernig ég fór að þessu.

Málið er nefnilega að ég hafði eftir hádegi á miðvikudegi og allan fimmtudaginn til að læra fyrir prófið. Mín ákvað bara að tjilla á miðvikudaginn og kíkja í heimsókn, eiga stund með karlinum, prenta út glósurnar og bara vera róleg í þessu. Nota svo allan fimmtudaginn til að læra.

Það fór ekki betur en svo að ég vaknaði rétt fyrir hádegið á fimmtudaginn. Við vorum búin að ákveða að kíkja hring á bílasölu í hádeginu af því við höfðum séð bíl á netinu hjá Toyota sem okkur langaði að skoða betur. Við slógum til með það,vorum komin niðureftir klukkan hálf eitt og komum heim aftur klukkan 18!!!

Haldiði að við höfum ekki bara endurnýjað sjálfrennireiðina okkar! Fáum hann reyndar ekki fyrr en á miðvikudaginn býst ég við. Fórum nefnilega með hann í ástandsskoðun og það var slitlin spindilkúlan hægra megin og þurfti að stilla bremsur og mengunin var í rugli þar sem það er kraftpúst undir honum. Við prúttuðum hann vel niður og fengum samþykkt að seljandi borgaði viðgerðina á öllum atriðum sem komu fram í ástandsskoðuninni. Góður díll Big Smile Varahlutir voru pantaðir í dag, hann fer á verkstæði á mánudag og svo fáum við hann sennilega á miðvikudaginn Big Smile

Hér er græjan:

Álfelgur, vetrar- og sumardekk, cruise control, sjálfskiptur, filmur í gluggum...og það bjánalegasta af öllu, það er DVD spilari!!! Við auðvitað alveg í skýjunum og getum ekki beðið eftir að fá hann afhentann!!!!


Skrifað klukkan 08:56 pm af: [Daðey Arnborg]
Comments (4)  

Wednesday, May 03, 2006
Mótmæli!

Mér gekk bara ágætlega í morgun, ekkert fall en engin tía heldur. Gekk merkilega vel miðað við hvað ég hafði litla sem enga einbeitningu til að læra. Næsta próf á föstudaginn...og djís, ég veit ekki einusinni hvernig á að læra fyrir það!

Það er alveg á hreinu að sumum finnst þeir ekki fá næga athygli þessa dagana og grípa til ýmissa aðferða til að hindra "framgang námsbókanna" Wink Ég verð nú bara að segja, ef þetta eru ekki mótmæli þá veit ég ekki hvað.

 






Skrifað klukkan 09:33 pm af: [Daðey Arnborg]
Comments (2)  

Next Page